Nash 1949

Sunnudagur, 20. maí 2012 07:24

Nash árgerð 1949 var  byltingarkenndur bíll, vindmótsstaða árgerðarinnar var um 55% minni en Packard bíls af sömu
árgerð og útlitið minnti á ýmsan hátt á gamalt pott baðker. Hönnuðir áttu skilið hrós fyrir djarfa útfærslu og þá
ekki síður forráðamenn Nash verksmiðjanna að þeir skyldu þora að kynna gripinn fyrir almenningi.
Salan af árgerð 1950 af  Statesman og Ambassador var 145.782 bílar.
almenningi. Fyrir utan byltingakennt útlit yfirbyggingar vakti athygli að tvískipt framrúðan var að baki og nú var
hún heilsteypt. Vélaúrvalið var það sama Nash 600  172 cid línuvélin með hliðarventlunum sem skilaði 82 hestöflum
og svo Ambassador línu toppventla sexan 243,8 cid sem skilaði 112 hestöflum.. Hafin var framleiðsla á bílnum i október
1948 og voru framleiddir 130.000 bílar af árgerðinni.Árið 1950 var boðið upp á 3 vélagerðir en Statsman 6 sem var
184.0 cid  og skilaði 85 hestöflum kom inn í flóruna. Salan af árgerð 1950 af  Statesman og Ambassador var 145.782
bílar. En kominn var kettlingur Nash Rabler til sögunnar sem gerð verða skil meðal annara smærri USA bíla á þessum
árum.
1949-1951-nash-airflyte-4Nash Airflyte 1949.

Nash árgerð 1949 var  byltingarkenndur bíll, vindmótsstaða árgerðarinnar var um 55% minni en Packard bíls af sömu árgerð og útlitið minnti á ýmsan hátt á gamalt pott baðker. Hönnuðir áttu skilið hrós fyrir djarfa útfærslu og þá ekki síður forráðamenn Nash verksmiðjanna að þeir skyldu þora að kynna gripinn fyrir almenningi.

Lesa nánar: Nash 1949

 

Báða.

Sunnudagur, 20. maí 2012 06:40

Hafnfirðingur er með poka með öpum í. Ungur maður gengur til hafnfirðingsins og spyr
hafnfirðinginn hvað hann sé með í pokanum. Maðurinn svarar því til að hann sé með apa.
Þá spyr ungi maðurinn hann hvort hann megi eiga einn ef hann getur getið upp á því hversu
marga apa hann er með í pokanum. “Ef þú getur getið upp á því hvað ég er með marga apa í
pokanum, skal ég gefa þér þá báða” svarar Hafnfirðingurinn.

Hafnfirðingur er með poka með öpum í. Ungur maður gengur til hans og spyr hvað hann sé með í pokanum.  Hafnfirðingurinn segist vera með apa í pokanum.  Þá spyr ungi maðurinn hann hvort hann megi eiga einn ef hann geti getið upp á því hversu marga apa hann er með í pokanum ? Ef þú getur getið upp á  hvað ég er með marga apa í pokanum, skal ég gefa þér þá báða svaraði  Hafnfirðingurinn.

Mercury Comet 1971.

Laugardagur, 19. maí 2012 07:24

Mercury Comet 1971.
Mercury kom aftur til sögunnar með Comet bílinn og átti meiri velgengni að fagna en árið 1969 og árið 1970 þegar
menn voru ekki sáttir við vöxtinn sem hafði hlaupið í gerðina. Þó yfirbyggingin væri
súma sama og hjá Ford Maverick bílnum sóttu þeir hjá Mercury í heimahaga varðandi vatnskassahlíf, afturljós og fleiri
uppfærslur Mercury Comet nýtti 210 hestafla 302 cu in V8 vélina og fleiri sportlegar útfærslur.
Hjólhaf bílsins, 103 in (2,600 mm) (2 dyra) , 109.9 in (2,790 mm) (4-dyra)
Lengd.  187 in (4,700 mm) (2 dyra ) 193.9 in (4,930 mm) (4 dyra)
Breidd.  70.5 in (1,790 mm)
Hæð. 53.5 in (1,360 mm) (2-dyra)  53.4 in (1,360 mm) (4 dyra)
Þyngd.   2,909 lb (1,320 kg) (2 dyra)  3,011 lb (1,366 kg) ( 4 dyra )


1971_Mercury_Comet_5_0_Mercury Comet 1971.

Mercury Comet 1971. Mercury kom aftur til sögunnar með Comet bílinn og nú var það 5 kynslóð bílanna sem sá ljósið  og átti meiri velgengni að fagna en árið 1969 og árið 1970. En þá voru menn ekki  sáttir við vöxtinn sem hafði hlaupið í gerðina. Þó yfirbyggingin væri sú sama sama og hjá Ford Maverick bílnum sóttu þeir hjá Mercury í heimahaga varðandi ýmsa íhluti..

Lesa nánar: Mercury Comet 1971.

 

Óskiljanlegar konur.

Laugardagur, 19. maí 2012 06:40

Fyrst segir sá dökkhærði - konan mín er svo undarleg, það var nautakjötsútsala í Hagkaup
um daginn og hún keypti 50 kg af kjöti og við sem eigum ekki einu sinni frystikistu. Nú
liggur allt þetta kjöt í þvottahúsinu og við komumst örugglega ekki yfir að éta það áður
en það skemmist.
Þá segir sá rauðhærði - konan mín er svo klikkuð, það var útsala á notuðum bílum um daginn
og hún keypti sér Toyotu og hún er ekki einu sinni með bílpróf. Nú stendur bíllinn bara
framan við húsið okkar óhreyfður.
Þá var ljóshærði karlinn farinn að veltast um af hlátri og segir við félaga sína - ykkur
finnst konurnar ykkar ekki gáfulegar, þið ættuð þá að vita hvernig mín er. Hún er úti á
Grikklandi með saumaklúbbnum sínum, ha, ha, ha, og hvað haldið þið að hún hafi tekið með sér,
ha, ha, ha.
Hún tók með sér 50 pk af smokkum og hún sem er ekki einu sinni með typpi.

Þrír félagar, dökkhærður, rauðhærður og ljóshærður voru að tala saman um óskiljanleg atvik í fari kvenna sinna. Fyrst segir sá dökkhærði - konan mín er svo undarleg, það var nautakjötsútsala í Hagkaup um daginn og hún keypti 50 kg af kjöti og við sem eigum ekki einu sinni frystikistu.

Lesa nánar: Óskiljanlegar konur.

Ford Maverick 1969

Föstudagur, 18. maí 2012 07:24

1969
Nýr bíll kom til sögunnar árið 1969 Ford Maverick byggður á Ford Falcon undirvagni og aðeins fáanlegur tveggja dyra með 170 cid vélinni sem skilaði100 hestöflum.. Þrátt fyrir að koma á markað á miðju framleiðslu ári og einhæft úrval var honum mjög vel tekið og alls seldust  127.833 bílar.
Af Ford Maverick árgerð 1969  seldust  127.833 bílar

1969_Ford_MaverickFord Maverick 1969

 

Ford Maverick var framleiddur á árunum 1969-1977. Hann var að smærri milligerð og ætlaður fyrst og fremst til að hamla    gegn vaxandi ásókn evrópskra og japanskra framleiðenda.

 

 

Lesa nánar: Ford Maverick 1969

 

Ekki ákærði

Föstudagur, 18. maí 2012 06:16

Sakborningurinn var ákærður fyrir morð. Flest benti til þess að hann væri sekur en ekkert lík
hafði fundist. Verjandinn ákvað að beita klækjum þegar hann flutti lokaræðuna. Kæru
kviðdómendur ég hef hérna óvænt í pokahorninu fyrir ykkur.
Eftir nokkrar mínútur gengur hér inn í dómsalinn maðurinn sem saksóknarinn heldur fram að
hafi verið myrtur. Hann leit í áttina að dyrunum og sama gerðu kviðdómendur og fleiri
viðstaddir. En ekkert gerðist. Nú kem ég nokkru mikilvægu, áðan héldu þið að maðurinn sem skjólstæðingur
minn er ákærður fyrir að hafa myrt myndi ganga í salinn enn ekkert gerðist. Og eins og
alltaf þegar er einhver vafi er á sekt sem menn eru ákærðir fyrir, ber að sýkna ákærða og þetta
vitið þið. Kviðdómur var fljótur að komast að niðurstöðu og hann var dæmdur sekur.
Hvers vegna spurði verjandinn, þið hljótið að hafa efast. Ég sá að þið störðuð á dyrnar.
Já við gerðum það en ekki skjólstæðingur þinn svaraði formaður kviðdóms.

Sakborningurinn var ákærður fyrir morð. Flest benti til þess að hann væri sekur en ekkert lík hafði fundist. Verjandinn ákvað að beita klækjum þegar hann flutti lokaræðuna. Kæru kviðdómendur ég hef hérna óvænt í pokahorninu fyrir ykkur. Eftir nokkrar mínútur gengur hér inn í dómsalinn maðurinn sem saksóknarinn heldur fram að hafi verið myrtur.

Lesa nánar: Ekki ákærði

Mercury Comet 1969

Fimmtudagur, 17. maí 2012 07:24

Mercury Comet árgerð 1969 var vaxinn upp úr því að vera bíll af millistærð og tók æ meiri svip af stóru bræðrum sínum. Hann var fáanlegur með línu sexunni sem fyrr en að auki var hægt að velja milli nokkurra V8 véla frá 302  cid að 390 cid og hestöflin voru frá 155 að 265. Salan varð ekki sem skyldi þar sem millistærðar áhugahópurinn taldi bílinn og stóran og þeir sem vildu sófana töldu bílinn ekki henta.
Af árgerð 1969 voru framleiddir  alls 14.104 bílar. (88)

1969_mercury-comet-1969aMercury Comet 1969

Mercury Comet árgerð 1969 var vaxinn upp úr því að vera bíll af millistærð og tók æ meiri svip af stóru bræðrum sínum með tilkomu 4 kynslóðar ( 1968-1969).  Hann var fáanlegur með 200 cid 115 hö  6 strokka línuvélinni en að auki var hægt að velja milli nokkurra V8 véla .

Lesa nánar: Mercury Comet 1969

 

Leynilögreglu hundur.

Fimmtudagur, 17. maí 2012 06:16

Halló halló ég er búinn að fá mér hund. Hverskonar hundur er þetta eiginlega ? Þetta er ekta lögreglu hundur. Lögregluhundur stuttfættur og langur? Já , þetta er nefnilega leynilögregluhundur.

Chevrolet Caprice 1978

Miðvikudagur, 16. maí 2012 07:24

Chevrolet Caprice 1978.Árið 1965 kom Caprice merkið til sögunnar hjá GM en bíllinn byggði á Impala gerðinni og var sá
vandaðasti sem kom frá Chevrolet það árið. Þegar kom að árgerð 1966 stimplaði hann sig rækilega inn en af bílnum
voru alls framleiddir 181,000 bílar.Ekki var sama siglingin á árgerð 1958 en alls voru smíðaðir 124, 500 bílar
smíðaðir af árgerðinni en þarna vantar fjölda langbaka en hjá Chevrolet voru smíðaðir 155.100 langbakar en þeir voru
misjafnlega útbúnir en gerðirnar Biscayne,  Bel Air og Impala eru allar með sínar útfærslur í þessum tölum.
Af Caprice voru alls smíðaðir 181,000 bílar af árgrð 1968.
Alls voru smíðaðir 1.900,049 Chevrolet bílar árið 1968.


1968_Che_CapriceChevrolet Caprice 1978.

Árið 1965 kom Caprice merkið til sögunnar hjá GM en bíllinn byggði á Impala gerðinni og var sávandaðasti sem kom frá Chevrolet það árið. Þegar kom að árgerð 1966 stimplaði hann sig rækilega inn en af bílnum voru alls framleiddir 181,000 bílar.  

Lesa nánar: Chevrolet Caprice 1978

 

Síða 1 af 424

«FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta»

Tölfræði

Meðlimir : 28
Efni : 5738
Vefhlekkir : 6
Innlit : 3791578

Úr handraðanum

Villi viðutan var á gangi með kaðalspotta í hendinni. Hvað er nú um að vera hjá þér spurði Óli vinur hans? Hef ekki hugmynd svaraði  Villi en ég er að velta fyrir mér hvort ég fann spottann eða týndi Skjóna.
Vefverslun MacLausna
Applevörur á betra verði

Bíll vikunnar

  • 2008 -2010 Dodge Viper.4 kynslóð. Árið 2008 kom fjórða kynslóð Dodge Viper bílanna til sögunnar
    Vélin var sem fyrr aðall bílsins en hún var V10 510 cu in og skilaði 600 hestöflum á 6000
    snúningum , gírkassinn var 6 gíra og beinskiptur. Hjólhaf  98.8 in (2,510 mm),
    lengd  175.6 in (4,460 mm),  breidd 75.7 in (1,920 mm) hæð,  47.6 in (1,210 mm) (coupe),
    48.6 in (1,230 mm) (SRT-10),  48.6 in (1,230 mm) ( opinn.),  þyngd 3,460 lb (1,570 kg).


    2008_ZB_Viper_SRT-10_blue Dodge Viper  2008 -2010.

     Árið 2008 kom fjórða kynslóð Dodge Viper bílanna til sögunnar, vélin var sem fyrr aðall bílsins en hún var V10 510 cu in og skilaði 600 hestöflum á 6000 snúningum.

    Nánar...
  • 2003_-Dodge-Viper-SRT10Þriðja kynslóð Dodge Viper bílanna kom til sögunnar árið 2003 og var smíðuð  til ársins 2006 .

    Nánar...
  • 1996_Dodge_ViperDodge Viper 1996.

    Önnur kynslóð Dodge Viper bílanna kom á markað árið 1996 og var hún við líði til ársins 2002.

    Nánar...
Höfundarréttur © 2012 Blaðið. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.